Skúffukaka

Innihald
150gr smjörlíki
3 bollar sykur (7,5 dl)
4 egg (má sleppa fyrir eggjalausa köku)
4 bollar (10dl) glútenlaust mjöl (Schaer B mix eða Semper fin)
1/2 bolli kakó (1,25dl)
2tsk matarsódi
2tsk lyftiduft (ath að það sé glútenlaust)
1 tsk salt
3tsk vanilludropar
2 bollar (5dl) Alpro soya yogurt natural (Súrmjólk eða mjólk eftir smekk)
3/4 bollar soðið vatn (bætt við smá í einu undir lokin og gjarnan mun minna ef notast er við mjólk í stað jógúrts)
Aðferð:
Hitið ofn í 180C blástur.
Hrærið saman smjörlíki og sykur, bætið eggjum við og hrærið inn eitt í einu. Bætið þurrefnum saman við (ekki hræra of mikið) svo á að hræra inn vanilludropa og soya jógúrt (Súrmjólk, mjólk, plöntumjólk, annað mjólkurlaust natural yougurt). Undir lokin er soðni vatni hrært saman við og deigið sett í bökunarpappírsklædda ofnskúffu og bakað.
Ef eggjum er sleppt þá er hægt að þeyta vökvan að kjúklingabaunum og nota smá af sykrinum saman við (1 dl kannski) annars má líka setja 2tsk edik saman við með jógúrti.
Kakan er bökuð við 180c blástur þar til tannstöngull kemur hreinn uppúr kökunni 25-35 mínútur ca, lítið gjarnan á kökuna með jöfnu millibili (ekki opna ofn) frá 20 mínútum ca.
Það er ekkert mál að gera hálfa uppskrift að dugir það þá í tvö hringform.
Smjörkrem geri ég með smjörlíki, flórsykri, kakó, vanilludropum og stundum smá slettu af plöntumjólk.