Flatkökur

Innihald
  • Bollamálið er 250ml

  • 3 bollar haframjöl (glútenlausir hafrar malaðir)

  • 1 bolli maísmjöl (pan) 

  • 1 tsk salt 

  • 10-12 soðnar kartöflur

Aðferð

Gerir um það bil 16 kökur. Þurrefni sett í skál og blandað saman. Kartöflur maukaðar og muldar saman við þurrefnin. Síðan er soðnu vatni blandað saman við þar til komin góð áferð (hnoðað saman) Mótaðar kökur og steiktar á hellu. Bleyttar aðeins báðu megin eftir steikingu og settar undir stykki.(svo þær haldi mýkt).