Maísbrauð
Innihald
150 g hrísmjöl
150 g maísmjöl
1 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk xanthan gum eða guargum
1 tsk salt
50 g smjör skorið í litla bita
2 stór egg
300 g mjólk (ég notaði möndlumjólk og það kom vel út)
Aðferð
Mjöli, lyftidufti, xanthangum og salti blandað saman, smjörsett út í blönduna og klipið saman við með puttunum þangað til deigið er einsog brauðmylsna.
Egg og mjólk pískað saman og hellt í miðjuna á deiginu oghrært á meðan.
Sett í smurt brauðform.
Bakað við 200°C í 35-40 mín og látið kólna áður en það er skorið.
